Tuesday, April 08, 2008

Heimurinn vondur er...

Nú er hætt að leita að lifandi Englu í Svíþjóð. Hún er talin af og eitt af ófétum jarðkúlunnar er talið hafa nauðgað henni og myrt.

Fyrir 2 vikum voru 2ja og 4ra ára börn myrt hér í landi.

Fyrir 10 dögum voru 5 ára stúlka og móðir hennar myrtar.

Í gær var ráðist á konu og unga dóttur hennar og þær lífshættulega særðar með hnífi.

NB þetta er SVÍÞJÓÐ. Þvílík mannvonska. Mín börn verða örugglega mjög ofvernduð því að heimurinn vondur er...

No comments: