Sunday, September 14, 2008

Svaðilför í Humlegården

Helgin byrjaði með því að við Ella fórum í bæinn að versla afmælisgjöf handa Elínu af Skattis. Þær Elínar eru jafngamlar og leika sér talsvert saman þa. þetta var ákaflega spennandi.

Eftir mikla umhugsun valdi Ella töfrasprota með áhrifahljóðum og littlest petshop dýr fyrir vinkonu sína og síðan héldum við í afmælið. Ellu fannst svo gaman að hún vildi helst ekki fara. Elín á svala 9 ára systur sem sá um skemmtiatriði með vinkonu sinni og síðan voru allar veitingar mjólkurlausar þa. hún hafði það ákaflega gott.

Á meðan við stelpurnar voru úti var Sindri Dagur heima með sjúkan pabba og undi hag sínum ekki vel. Það var því heppni að það hljóp á snærið hjá honum í dag og hann og Ella fengu að hitta Nínu Þorbjörgu grallaraspóa. Tríóið fór í svaðilför á leikvöll þar sem m.a. eftirfarandi gerðist:

* Sindri Dagur og Nína Þorbjörg fóru í sandköstunar stríð meðan ég og Ella fórum að róla. Af einhverjum ástæðum leit Steinunn þó út eins og sandálfur á eftir!

* NÞ komst í hann krappan og var næstum dottin niður 2m þverhnípi (ef ekki lengra!). Mjög skelfilegt.

Það var því hressandi að komast á kaffihús eftir þessar hrakfarir. Og næst á dagskrá er enn ein hressandi vinnuvika. Læt fylgja með 2 myndir af Ellu og Sindra Degi á Humlan. Nína var svo snör í snúningum í dag að hún náðist ekki á mynd.



2 comments:

Anonymous said...

Vá hvað Elín Lilja er orðin breytt, orðin svaka stór!

LindaKrissó said...

4ra ára stór stelpa...